top of page

Dagur 19: 03.06.2016
 

Í dag mættum við hressar og svolítið stressaðar í skólann því það var fyrsta kynningin á verkefninu okkar. Kynningarnar áttu að byrja klukkan 10:40 svo að fyrir þann tíma tókum við nokkur rennsli úti í góða veðrinu. Kynningin gekk bara ágætilega fyrir utan nokkur tölvu vandamál. Eftir það fínpússuðum við básinn okkar enn betur og héldum áfram með líkanið okkar.

bottom of page